|



4. júní 2010
Í dag og á morgun, frá kl. 12-16, er þér boðið að kynna þér ómótstæðilegan bíl í sýningarsal Bílaumboðsins ÖSKJU. Nýr E-Class er aflmeiri, stærri en samt sparneytnari en fyrri gerð. Auk þess er hann með nýjum hátæknivæddum búnaði, eins og jafnan er þegar ný gerð er kynnt, sem ætti að falla aðdáendum Mercedes-Benz vel í geð.
E-línan hefur verið endurhönnuð jafnt að utan sem innan. Breytingarnar eru talsvert miklar. Þrátt fyrir miklar viðbætur í búnaði er bíllinn á lægra verði frá framleiðanda en fyrri gerð. Bíllinn er 16 mm lengri, 10 mm lægri og 32 mm breiðari en áður. Þá er hjólhafið 20 mm meira, 2874 mm, sem skiptir sköpum í bættum akstursþægindum og meira innanrými.
Farangursrýmið er 540 lítrar og þar komast fyrir tvær ferðatöskur af stærstu gerð hlið við hlið eða fjögur golfsett. Geymsluhólf inni í bílnum eru fjölmörg og rúma alls 78 lítra.
Nýr E-Class býr yfir fjölmörgum nýjungum, framúrskarandi hönnun og nýju útliti. Meðal þessara nýjunga eru:
- Lágmörkun á mótstöðu og eldsneytiseyðslu.
- Nýtt skynvætt fjöðrunarkerfi.
- ATTENTION ASSIST sem lætur ökumann vita þegar hægist á hreyfingum og svefn sækir að.
- PRE-SAFE® öryggisbúnaður sem skynjar aðsteðjandi hættu og strekkir á öryggisbeltum og allar rúður lokast sjálfvirkt.
- Handfrjálst símkerfi (Bluetooth) sem nú er staðalbúnaður í öllum nýjum E-Class.
Þetta eru einungis nokkrar af þúsundum nýjunga sem er að finna í nýjum E-Class. Enginn viðhaldskostnaður er fyrstu 3 árin eftir kaup því Alþjónusta Bílaumboðsins ÖSKJU fylgir öllum nýjum Mercedes-Benz E-Class í 3 ár. Grunnútfærsla E-Class kostar 8.190.000 kr.
Upplifðu einstaka hönnun og þiggðu hjá okkur léttar veitingar. Við tökum vel á móti þér. |